----------Stelpurnar------------

11.02.2008 21:34:11 / Helga

Tilraun2

Jæja.. við reynum aftur..;)

Fimmtudagur kl 19:30

Hjemme hos Helga

éta, spjalla og kúka!!

Game??


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 17:24:40 / Helga

Jæja..loksins..

Þetta loksins hefur tvöfalda merkingu!! Loksins kemst ég inná þessa blessuðu síðu.. eða bara blog.central síðu yfir höfuð en það sem meira er LOKSINS.. verður e-ð af því að við hittumst;)

hehe.. en allavega, þá er hittingur hjá mér á föstudaginn.. ég ætla að elda ofan í ykkur þannig þið þurfið ekkert að vera að koma með neitt frekar en þið viljið.. Ása var t.d. búin að stinga uppá doritos og heitri ídýfu.. þið ráðið bara.. það væri nú ekki slæmt að gæða sér á einni Betty í eftirrétt;)

en hvenær viljið þið hittast?? eigum við að segja hálf átta? átta??

segiði til..

Besos

Helga sem var í náttbuxum í vinnunni í allan dag og með blóm á kinnunum og bleikan nebba!!

Böddi kryppa elskar ásu!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 21:50:56 / Helga

crap

Einu sinni var gömul kona að ganga niður götu með tvo fulla plastpoka. Lögreglumaður stóð þarna rétt hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum pokanum og 5000 kr. seðlar flugu úr pokanum endrum og eins.

Eitthvað fannst honum þetta dularfullt og gekk upp að konunni: "Góðan daginn væna mín", sagði hann. "Ég hef tekið eftir því að það eru 5000 kr. seðlar fjúkandi úr pokanum þínum?" Konan stoppar og lítur bak við sig og sér seðlana á víð og dreif um götuna "Æ þakka þér fyrir væni minn" stundi í konunni "Ég ætti nú að drífa mig í að taka þá upp".

En þegar hún ætlar að leggja af stað að tína upp seðlana stöðvar lögregluþjónninn hana,. "Engan asa væna mín, hvernig stendur eiginlega á því að þú ert með fullan plastpoka af fimm þúsund köllum? varstu að ræna banka"?

Gamla konan brosti "nei það gerði ég nú ekki en það vill svo til að bak við garðinn minn er stór fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót eru í gangi að þá koma oft ungir menn og pissa í blómabeðin hjá mér svo ég tók upp á því að standa þarna með garðklippurnar og segja "5000 kr. eða ég klippi hann af".

"Jahá.. þetta er áhugaverð hugmynd" sagði lögregluþjónninn hugsi. "En hvað ertu með í hinum pokanum?"

"Það eru nefnilega ekki allir sem borga..." sagði gamla konan ..

Jæja..er komin tími á hitting?? næsta vika?? hvernig hentar hún? gætum kannski hist hérna heima á fimmtudag eða föstudag..??

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 15:25:32 / asa

Saumó

Hey kvinne

 

Var að pæla hvort við stelpur ættum ekki að fara hafa saumó eins og einu sinni í mánuði, þá annaðhvort á kaffihúsi eða heima hjá einhverri. Bara skipta þessa niður á mánuði, og hafa svona eins og einu sinni í mánuði?

Líst ykkur eitthvað á það ? :)

 

kv.

 

Ása


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 13:33:56 / asa

Hey hey

Hæhæ stelpur !!

 

 

Ætla einhverjar hérna á blótið góða á Bakkanum 26 jan ?

Var að pæla ef við ætluðum einhverjar að fara, hvort við ættum að sitja saman eða hvað ?


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 20:33:53 / H.Seljan

Base chick!

Jæja þá er maður fluttur á gömlu varnarstöðina...! Skógarhlíð 928 nánar tiltekið...!

 

Endilega droppið í heimsókn...!;)

ætla kannski að hafa smá innflutnings"thing" u næstu helgi...

langar rosalega að fara að hitta ykkur allar..! 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 15:22:44 / H.Seljan

Litlu jólin okkar:)

 

 

Hæ það virðist engin hafa tíma til að hittast fyrir jól... sem ég skil afar vel sko... en ég var þá að pæla hvort að við gætum ekki hist bara einhvern tíma fyrir þréttandann og haldið þau þá...?

bara smá hugdetta...

Jólakveðja, Hildur Seljan;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 11:57:30 / Svana

Hej på dig:)

Hvað segiði er það kaffihús kl 20,30 mér finnst það eigi að vera Vegó en annars ráðið þið alveg;)? Ég er game ef gestirnir mínir fara ekki rosa seint;)

 

Svana 


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 22:59:23 / asa

Skvísur

Hæ skvísur !!

 

Var að hugsa hvort ykkur langaði að kíkja út á lífið næstu helgi ?

Þvílíkt langt síðan maður hitti ykkur allar.

 

Kv.

 

ÁMV 


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 23:52:43 / asa

Stelpur

Hæ stelpur !!
 
 
Ég var að hugsa hvort við ættum að vera með svona smá jólastemmningu eins og í fyrra. Var þá að pæla hvaða dagar myndu henta fyrir ykkur stelpur? og þá sérstaklega náttúrulega þær sem eru í prófum :)
Ég myndi persónulega vilja hafa þetta fyrir átjánda des, svo ég kæmist.
Bara eitt kvöld þarf ekkert að vera langt :)
 
Endilega segið hvað ykkur finnst. 
 
Kv.
 
Ása :) 

» 7 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 15:57:07 / H.Seljan

Skírn

 

 

TIL HAMINGJU MEÐ NAFNIÐ

 

HARALDUR ELÍ



» 1 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 13:47:48 / asa

Kaffihús

Engin til í kaffihús á miðvikudagkvöldið ? ? ?


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 19:23:41 / asa

Kaffihús

Það virðist vera eitthvað erfitt fyrir okkur að hittast :(

 

Pæla hvort ykkur langaði að kíkja á kaffihús á miðvikudagskvöld ?  

 

Verðum svo líka að fara taka gott stelpudjamm saman... 

 

 

Kv.

 

 

ÅSE 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 21:00:37 / asa

Stelpudjamm

Hæhæ skvísur !!

 

Ég var að pæla hvort ykkur langaði ekki að taka eitt gott stelpudjamm saman á föstudaginn?

 

Kv.

 

Ása :) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 22:41:16 / asa

Djamm ...

Jæja hvað segið þið stelpur, langar ykkur ekkert að kíkja á Queen stemmningu á Players annaðkvöld - föstudag :) Já ég veit Players, en ég held að þetta gæti orðið alveg dúndrandi stemmari :) Einhver hljómsveit, og Jónsi í Svörtum fötum og Eiríkur Hauk og einhver ex aðstoðamaður Freddie :)

Endilega látið mig vita, ég á heima stutt frá :P 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Myndasöfn
RSS tengill